top of page
Cinnamon Syrup

Kanilsírópið frá Liber&Co. nær að fanga hinn kryddaða og sæta keim eins eftirsóttasta krydds í heimi. Galdurinn er í sérgerðu kanilbarkarþykkni, sem er gert bæði úr Ceylon- og Cassia-tegundum þessa sígilda krydds. Demerara-hrásykur gefur svo undirtóna af karamellu og melössum.

 

Kanill er frábær á haustin og veturna þegar hann er paraður við árstíðabundna ávexti líkt og epli, hrærður í Kanil-Old Fashioned eða notaður í heita kokteilinn Hot Toddy. Á sumrin skín framandi keimur kanilsírópsins vel í tiki-kokteilum líkt og Zombie, Pearl Diver og Jet Pilot.

Cinnamon Syrup

From 3.490krSale Price
Stærð
375mL
750mL
    bottom of page